Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fréttir

Reykjaböð - Nýtt baðlón opnað í Reykjadal.

Ný náttúruperla hefur bæst í flóru baðstaða á Suðurlandi en Reykjaböð í Reykjadal hafa nú tekið á móti sínum fyrstu gestum. Staðurinn er hannaður í anda íslenskrar baðmenningar og fellur einstaklega vel að umhverfi sínu, með stórbrotið landslag Reykjadals og kraumandi jarðhita allt um kring.

Laugarvatn Fontana opnað eftir endurbætur

Fontana á Laugarvatni hefur opnað dyr sínar á ný eftir umfangsmiklar endurbætur. Staðurinn hefur um árabil verið einn vinsælasti áningarstaður á Suðurlandi, enda sameinar hann jarðhitalón, gufuböð og fallegt umhverfi við bakka Laugarvatns í eina heild. Með endurbótunum fá gestir nú enn betri umgjörð til að njóta þess sem Fontana hefur upp á að bjóða.

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar býður fyrirtækjum á Suðurlandi í samtal

Í október verður Hæfnisetur ferðaþjónustunnar á ferð um Suðurland og býður fyrirtækjum í ferðaþjónustu að fá heimsókn þar sem kynntar verða hagnýtar lausnir og verkfæri sem styðja við uppbyggingu mannauðs, fræðslu og starfsþróun.

Almyrkvinn 2026. Hvar finn ég upplýsingar?

Almyrkvinn er einstakur náttúruatburður sem verður sýnilegur frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga. Annars staðar á landinu verður djúpur deildarmyrkvi, þar sem skuggi tunglsins gengur að miklum hluta til fyrir sólina. Á Suðurlandi mun tunglið til að mynda hylja á milli 96-99,9% sólarinnar eftir því hvaðan er horft til himins þegar myrkvinn nær hámarki. Með góðum undirbúningi, samræmdri upplýsingagjöf og góðri samvinnu getum við skapað örugga og eftirminnilega upplifun fyrir íbúa og gesti sem vilja upplifa atburðinn.
Sólheimajökull og jökullónið.
Mynd: Þórir N Kjartansson

Varasamar aðstæður við Sólheimajökul

Veðurstofa Íslands varar við hættulegum aðstæðum við sporð Sólheimajökuls eftir miklar breytingar á svæðinu undanfarna daga og vikur. Lítið jökullón hefur myndast austan við jökulsporðinn og íshaft sem tengir ströndina við jökulinn hefur þynnst verulega og er orðið óstöðugt.
Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands á Stracta Hótel Hellu 2026.

Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 2026 haldinn á Hellu

Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands (MSS) 2026 var haldinn á Stracta Hotel Hellu þann 7. maí síðastliðinn. Fundurinn var vel sóttur þrátt fyrir að samgöngumál hefðu haft áhrif á að ekki reyndist mögulegt að halda fundinn í Vestmannaeyjum líkt og upphaflega stóð til. Sveinn Hreiðar Jensson, formaður stjórnar, setti fundinn og bauð gesti velkomna. Lagði hann til að Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SASS, yrði kjörin fundarstjóri og Árdís Erna Halldórsdóttir verkefnastjóri MSS fundarritari. Var það samþykkt samhljóða.
Toronto, Montreal og Vancouver heimsóttar.

Suðurland kynnt á vinnustofum í Kanada

Í byrjun júní fórum fram þrjár vinnustofur í Kanada á vegum Íslandsstofu en þær voru haldnar í Toronto, Montreal og Vancouver. Á vinnustofunum var íslensk ferðaþjónusta kynnt þarlendum söluaðilum og ferðaskrifstofum af 17 íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum, 4 Markaðsstofum og Íslandsstofu.

Vegalokanir vegna stórtónleika á Þingvöllum 20. júní.

Vegna fyrirhugaðra tónleika þann 20. júní næstkomandi í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur lögreglan farið fram á tímabundnar vegalokanir frá kl. 15:00 á öllum helstu vegum sem liggja að og í gegnum þjóðgarðinn. Takmarkanir verða settar á: að vestan við Grafningsafleggjara, við Miðfell að austanverðu og norðan við Þingvelli á Uxarhryggjarvegi á tímabilinu frá kl. 15:00 til miðnættis.
Strandarkirkja - Páll Jökull Pétursson. Almyrkvinn mun sjást frá Strandarkirkju ef vel viðrar.

Almyrkvi - Þriðji kynningarfundur 10.júní á Teams

Þriðji fundur vegna almyrkvans verður haldinn þann 10.júní klukkan 13:00-14:15 á Teams. Sævar Helgi Bragason mun kynna almyrkvann og í kjölfarið verður upplýsingavefur stjórnvalda kynntur. Runólfur Þórhallsson yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra stýrir fundi.
Hjálparfoss - Þráinn Kolbeinsson

Hvers virði er ferðaþjónusta í mínu sveitarfélagi?

Samtök ferðaþjónustunnar hafa að undanförnu aflað gagna um ferðaþjónustu frá Hagstofu Íslands og birt á vef sínum. Markaðsstofa Suðurlands hefur nýtt þessi gögn við að greina þróun og áhrif ferðaþjónustu á sunnlensk sveitarfélög. Sveitarfélög og framboð á Suðurlandi hafa fengið senda samantekt fyrir sitt sveitarfélag í von um að hún nýtist við stefnumótun og ákvarðanatöku í málefnum sem varða greinina.

Viðurkenningar fyrir Sprota ársins og Framlag ársins 2026

Markaðsstofa Suðurlands veitir árlega viðurkenningar fyrir Sprota ársins og Framlag ársins í ferðaþjónustu á Suðurlandi. Á aðalfundi Markaðsstofu Suðurlands, sem var haldinn þann 7 maí s.l. á Stracta Hóteli á Hellu, voru þessar viðurkenningar veittar til fyrirtækja í greininni.
Ferðamaður stendur á toppi Eldfells. Ljósmyndari: Þráinn Kolbeinsson.

Rúmlega 178 milljónir til innviða á ferðamannastöðum á Suðurlandi

Fimm verkefni á Suðurlandi hlutu samtals 178.567.403 krónur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Úthlutunin er hluti af nær 490 milljóna króna styrkveitingu til 18 verkefna um land allt þar sem sérstök áhersla var lögð á öryggi ferðamanna á fjölsóttum ferðamannastöðum.